Útfærð rannsóknaáætlun META-NET fyrir margmála Evrópu 2020
Útdráttur
Sækið alla skýrsluna á PDF sniði!
VIÐ ÞURFUM Á HJÁLP ÞINNI AÐ HALDA!
Við viljum bjóða þér að sækja SRA skýrsluna og hjálpa okkur með eftirfarandi atriði.
- Vinsamlegast látið okkur vita ef skýrslan nær þeim tilgangi sem lýst er hér að framan.
- Við þurfum fleiri vitnisburði frá vísindamönnum og enn fremur frá fulltrúum iðnaðarins! Hefur þú skoðun á margmála Evrópu og SRA? Endilega segðu okkur frá því! Styður þú SRA og stefnumörkun okkar? Vinsamlegast láttu okkur þá vita! Hvort sem skilaboðin eru stutt eða löng þá eru þau vel þegin! Við munum nota vitnisburð þinn ásamt öðrum vitnisburðum á bakhlið SRA, inni í skýrslunni eða á vefsíðu okkar.
- Ef þú hefur í fórum þér áhugaverð gögn, sannfærandi tölur eða tölur yfir ákveðin markaðssvæði sem gætu hentað SRA og sem myndu styrkja boðskapinn, vinsamlegast sendu það til okkar!
- Í sjötta kafla er fjallað um forgangs rannsóknastefin þrjú en einnig hugmyndir að evrópskum þjónustuvettvangi fyrir máltækni. Í þessari útgáfu ákváðum við að gefa rannsóknastefjunum og evrópska þjónustuvettvangnum ekki nafn. Hefur þú kannski hugmynd að góðu nafni sem hægt væri að nota sem alþjóðlegt vörumerki yfir stefin og þjónustuvettvanginn? Ef svo, endilega hafðu samband!
- Þér er velkomið að senda SRA til allra áhugasamra starfsfélaga sem gætu komið með gagnlegar athugasemdir og innsæi sem nýst gætu í lokagerð skjalsins.
Vinsamlega sendið viðbrögð ykkar til georg.rehm@meta-net.eu fyrir 15. september 2012. Öll viðbrögð verða tekin til athugunar fyrir lokaútgáfu SRA, sem gefin verður út í nóvember 2012.
Þakka þér kærlega fyrir hjálpina og stuðninginn!
Tækniráð META
Þetta skjal
- Júlí 2012: Útfærð rannsóknaáætlun META-NET um margmála Evrópu, Tækniráð META (ritstj.)
Eldri skjöl
- Mars 2012: Máltækni 2020. Framtíðarsýn og forgangur í máltæknirannsóknum í Evrópu til ársins 2020. Í átt að stefnumótun um rannsóknaáætlun META-NET, Aljoscha Burchardt, Georg Rehm, Hans Uszkoreit (eds.)
- Mars 2011: Hið evrópska margmála upplýsingasamfélag framtíðarinnar. Framtíðarsýn um útfærða rannsóknaáætlun, Aljoscha Burchardt, Georg Rehm, Felix Sasaki (eds.)